Heimsins versta mynd af litlum árangri. Það gæti verið samantektin á þessum UFO degi og myndinni sem ég tók. Ég bara nenni ekki að reyna að ná betri mynd en þetta. Sorrí! :-/
Í dag var sem sagt aðeins saumað í kaktusnum í UFO stykkinu en hjarta mitt lá hjá Love Ornament Nálarúllunni
Ég kláraði eins mikið og ég gat í því án RG petite treasure braid. Það er það eina sem vantar í þetta stykki og ég býst við að fá þetta í póstinum á fimmtudag. Það kom sko bréf frá tollinum í dag um að sendingin væri komin til landsins. Nú er bara að bíða eftir að fá þetta í hendurnar..
Ég er ekki enn búin að setja Fyre Werks borðann á stykkið þar sem hann er festur niður með petite braid þræðinum sem mig vantar. En ég saumaði yfir einn (hjörtun hjá stöfunum og kardinálinn) sem er bara ansi erfitt. Ég bara spyr, er einhver tækni við það eða er það bara svona erfitt? Ég sé mig ekki gera mikið af slíku í framtíðinni, nema bara ef það er svona lítið eins og í þessu munstri..
Svo er annað spor þarna, Twill Stitch, sem er soldið skondið. Mér fannst bara gaman að gera það en mér finnst það samt ekki koma neitt spes út. Þetta er gert með NN garninu (liturinn heitir Moulin Rouge
) og ég skil ekki hvernig hægt hefði verið að fá þetta til að vera eins og í blaðinu. Þar kemur litabreytingin eins og í bylgjum en hjá mér er bara ljós blettur í miðjunni eins og ég hafi misst klór á þetta!.. Jæja, ég ætla að gera aðra svona og þá næ ég kannski að gera þetta spor betur, a.m.k. þannig að litaskiptingin verði betri þarna..
Þó svo að ég hafi ekki fengið pöntunina frá Sew and So (bara tollabréfið) þá fékk ég nú annan glaðning í póstinum í dag.. Ég skammast mín fyrir að segja þetta en ég var búin að gleyma því að ég hafði keypt þetta, en ég fékk kit fyrir enn eina nálarúlluna
Þessi er frá Shepherd’s Bush og heitir Thisbe Roll og er voða sæt. Það fylgir auðvitað allt með, garnið, efnið, perlurnar og lace sem á að festa á stykkið. Ég hef aldrei gert það en það verður bara gaman að því
Ég býst við að byrja á þessu stykki á morgun (nema eitthvað annað grípi mig
)
UFO tuesday and more..
I stitched a little in my UFO piece but my heart was with the Love Ornament Needleroll
I’m sorry for the horrible pic of the UFO progress, but I just can’t take a better one of that right now. Sorry :-/
I think I’ve stitched about everything I can in the Love needleroll, I just need the Treasure braid to be able to complete it. I haven’t done the part with the Fyre Werks because that’s fastened with the treasure braid. But the good news is that the order with that braid is on it’s way to me, it’s in Reykjavík right now and I am positive I’ll have it in my greedy hands on thursday. Then I can finish the Love needleroll
This is the first time I’ve done over one stitching. I must say that I found it hard. Maybe I was doing it wrong or something but I had trouble with the thread laying like I wanted it too. Are there any tricks for doing this properly? I don’t think I’ll do much of this over one stitching except if it’s just a little bit (like here) in the design.
And the Twill Stitch was a little anti-climatic for me too. Anne had warned me about it, that it wouldn’t come out for her like in the mag and I tried to do it a bit differently than the instructions said but it came out like I had spilled some chlorine on there.. A white spot in the middle! Oh, well, I’m planning on making another one like this so I’m going to try to do this stitch better then.
Even if I didn’t get my treasure braid in the mail today (along with the beads for the Valentine’s Exchange) I did get another thing I had completely forgotten about buying.. (I should be ashamed of myself) The Thisbe Roll from Shepherd’s Bush. It has everything needed to finish it and I can’t wait to start it. I am planning on starting it tomorrow
Unless something else screams at me for attention